Leiðbeingar fyrir uppsetningu á Thunderbird
póstforritinu, ef maður er með tölvupóstfang
sem endar á hi.is. Unnið uppúr leiðbeiningum
frá rhi.hi.is, sem eru því miður nokkuð villandi.
Leiðbeiningarnar geta líka virkað með öðrum
póstforritum, t.d. Outlook express.
- Nærð í Thunderbird forritið á http://www.mozilla.org/download.html
- Opnar zip skránna og setur Thunderbird möppuna á einhvern góðann stað á harða disknum, t.d. í program files.
- Thunderbird býr ekki til "shortcut" á skjáborðið þitt, þú verður að gera það sjálfur með því að smella með hægri músartakkanum á Thunderbird forritið, halda honum inni, draga'nn yfir á skjáborðið, sleppa þar músartakkanum og velja "create shortcuts here"
Til að stilla Thunderbird inná netfang@hi.is:
- Tools -> Account Settnings.
- Add Account -> email account.
- Skráir niður nafn og netfang.
- Velur IMAP þegar
þú ert spurð(ur) um "incoming server" og skrifar mail.hi.is *
- Þegar spurt er um "outgoing server":
- Ef þú ert tengd(ur) við þráðlaust net HÍ, eða í gegnum HÍ-adsl, þá skrifarðu mail.hi.is
- Ef þú ert tengd(ur) við internetið á e-n annan hátt þá verðurðu að skrifa póstþjón þess aðila sem veitir þér internetaðgang, dæmi:
- Ef þú ert hjá Landsímanum þá skrifarðu mail.simnet.is
- Ef þú ert hjá Ogvodafone þá skrifarðu mail.internet.is
- Upplýsingar um outgoing server (í: póstmiðlara) er oftast að finna á heimasíðu þjónustuaðilans.
- Svo skrifarðu notendanafn og password etc. etc., þetta
ætti að vera komið hjá þér
núna, það er skref 5 sem rhi.hi.is gleymir að taka
fram í sínum leiðbeiningum (þeir segja manni
bara að skrifa mail.hi.is - nema hvað þá getur
maður ekki sent tölvupóst til neins sem ekki er með
@hi tölvupóstfang) og það er ekki fyrir hvern sem
er að átta sig á því.
* ef þú ert með póstfang hjá e-m öðrum aðila (netfang@aðili.is) þá skráir þú póstþjón viðkomandi aðila sem incoming server, oftast virkar að gera mail.viðeigandi-lén, s.s. mail.strik.is mail.isl.is